Sumar - 2026

Talsetningarnámskeið unglinga

Hvernig er námskeiðið?

Kennd eru undirstöðuatriði í radd- og talþjálfun. Farið er í skemmtilega leiki sem skerpa einbeitingu, snerpu og leikræna tjáningu. Unglingarnir fá leiðbeiningar í upplestri og svo síðast en ekki síst kennslu í talsetningu. Þátttakendur talsetja teiknimynd auk annarra skemmtilegra verkefna, auk þess að taka upp raddir allra til að eiga í raddbanka.
Í lok námskeiðs verður haldin útskrift þar sem allir fá viðurkenningaskjal og teiknimyndin verður sýnd fyrir aðstandendur.

Dagskrá sumarnámskeiðs 2026

Fyrsti tími og kynningarfundur með foreldrum: mánudagur 29. júní kl. 12:30 – 15:00
(Kynningarfundurinn með foreldrum er frá 12:30 – 13:00)

Annar tími: þriðjudagur 30. júní kl. 13:00 – 15:00

Þriðji tími: miðvikudagur 01. júlí kl. 13:00 – 15:00  

Fjórði tími: fimmtudagur 02. júlí kl. 13:00 – 15:00  

Útskrift og frumsýning á talsettu teiknimyndinni: föstudagur 03. júlí – tímasetning staðfest síðar.

(Ath. að kennt er jafn marga tíma á sumarnámskeiðinu og á vor- og haustnámskeiðunum)

Kynningarfundur og námskeiðin eru haldin á sama stað:
Stúdíó Sýrlandi - Vatnagörðum 4 - 104 Reykjavík

Kennari á sumarnámskeiðinu er Árni Beinteinn Árnason

Greiðsla og verð

Verð á námskeiðinu er 54.990kr

Namskeid@syrland.is

Lagt er inná reikning:

Senda kvittun á

0370-26-501007

kt 501007-0990

Dagskrá:

Ekki viss?

Vantar fleiri upplýsingar?- Ekki hika við að spyrja, erum alltaf til í spjall.